Jerry Lee Lewis Whole lotta shaking´going on“ eftir goðsögnina Jerry Lee Lewis hefur í gegnum tíðina verið ofarlega á listum yfir vinsælustu lög Rokksögunnar. Það var annað lagið sem gefið var út á smáskífu með Jerry Lee Levis og lagið kom Jerry Lee Lewis á spjöld sögunnar fyrir vikið.

Jerry Lee Lewis fæddist 29.sept.1935 í Ferryday , Louisiana, U.S.A. Strax í kjölfarið fylgdu aðrir smellir eins og hin sívinsælu lög ”Grear balls of fire“ ,”High School confidential“ og ”What´d I say" sem hafa unnið sig inn í hug og hjörtu allra sem að tónlist Jerry Lee Lewis þekkja. Strax á sínum upphafsárum vakti Jerry Lee Lewis mikla athygli vegna glæsilegrar, Viltrar og umdeildar sviðsframkomu sinnar og sem fær píanóleikari. Hann hafði eins og Carl Perkins gítar leikari og góðvinur Jerry Lee Lewis alist upp við country og Rhytm and blues tónlist. Jerry Lewis lék talsvert í kvikmyndum og er þá helst að nefna Jamboree ( 1957 ) High School confidential ( 1958 ) og hið klassíska ódauðlega Bandaríska kvikmyndaverk Young and deadly ( 1960 )í leikstjórn Edward Dein.

Ferill hans beið talsverðan hnekk árið 1958 er hann giftist 14 ára gamalli frænku sinni. Og fékk hann það orð á sig fyrir að vera brarnaníðingur og varð fyrir miklu aðkasti frá almenningi, jafnt út á götu og á tónleikum, Og mátti þola mikla gagnrýni frá fjölmiðlum. Og í kjölfar þessa atburða fór Jerry Lewis á eitt alsherja fyllerí í nokkur ár og átti við mikla að stríða.

Jerry mátti einnig Snemma á sjötta áratugnum þola mikla gagnrýni en snéri sér talsvert að country tónlist og voru gefnar út með honum frábærar hljómplötur á því sviði. Jerry Lee Levis fékk viðurnefnið “ The killer “.

Jerry Lee Lewis er gamall jálkur og en í fullu fjöri. Hann heldur tónleika af og til út um allan heim. En hefur haldið sig fjarri og haft hægt um sig í sviðsljósinu undanfarið.

Jerry Lee Lewis kom til íslands árið 1983 og hélt glæsilega tónleika á Broadway.