Nirvana Info Kurt Cobainvar söngvari, gítarleikari, laga- og
textasmiður hjómsveitarinnar Nirvana, ásamt því að vera
umdeildur en jafnframt elskaður leiðtogi sveitarinnar.
Kurt fæddist í smábænum Hoquaim þann 20. febrúar 1967.
Móðir hans var gengilbeina en faðir hans bifvélavirki.
Fjölskyldan flutti brátt til lítils bæjar að nafni Aberdeen.
Á yngri árum sínum var Kurt oft veikur af berkjukvefi
og er hann var sjö ára skildu foreldrar hans. Hann varð þá
mjög ófelagslyndur og erfiður, hann náði sér aldrei
almennilega eftir þetta. Eftir skilnaðinn flutti Kurt á
milli ættingja og á tímabili bjó hann undir brú, en þess má
geta að þar fékk hann hugmyndina af laginu “Somthing in The Way”.
Á þessu tímabili í æfi sínu kynntist hann Krist(Chris) Novoselic og
þeir hlustuðu mikið á breskar hljómsveitir s.s. Sex Pistols.
Í gagnfræðaskóla var Kurt lagður í einelti en hann hefndi sæin
þó með ýmsum ráðum, Kurt hefur ætíð haft óbeit á skólakerfinu.
Kurt og Krist stofnuðu ótal hljómsveita áður en Nirvana
varð að raunveruleika. Í fyrstu lék Kurt gjarnan á trommur
en Krist söng og spilaði á gítar. Það var ekki fyrr en árið
1986 sem Nirvana varð til og aðeins þremur árum seinna fengu
þeir sinn fyrsta plötusamning.
Þegar Kurt varð frægari og hjómsveitin vinsælli fór
Kurt að hafa áhyggjur af því að þeir væru að laða að vitlausa
hópa samfélagsins, þá sem punk-samfélgið hefur óbeit á.
Í febrúar 1992 giftist Kurt söngkonunni Courtney Love sem
þegar var barnshafsndi. Í ágúst sama ár fæddist dóttir hans
sem síðar var skírð Frances. Kurt reyndi að fyrirfara sér
sama ár en án árangurs. Þann sjöunda apríl fannst Kurt dáinn
á heimili sínu og læknar sögðu hann hafa dáið tveimur dögum
áður. Lögreglan telur hann hafa framið sjálfsmorð en fjölmargar
sannanir benda til þess að hann hafi verið myrtur.


Krist Novoselic fæddist 16. maí árið 1965. Krist
var tékkneskur að uppruna en bjó í Bandaríkjunum. Hann
kynntist Kurt þegar Kurt hafði verið rekinn að heiman af móður
sinni. Þeir léku saman í fjölmörgum hjómsveitum þar sem að
Krist var söngvari og gítarleikari en Kurt trommari en síðar
skipti Kurt yfir í sönginn og gítarinn er Krist fór að leika á
bassa og þannig var hjóðfæraskipunin enn þegar hjómsveitin
sundraðist við andlát Kurts. Krist er nú í hjómsveitinni
Sweet 75 en hefur einnig spilað töluvert með Elton John.


David Grohl fæddist 14. janúar árið 1969 en hann var
aðal-trommari Nirvana. Dave var ekki í Nirvana er þeir tóku
upp sína fyrstu plötu, Bleach, en þá var Chad Channing á
trommur ef frá er talin “Floyd the barber”, “Paper cuts” og
“Downer” þar sem Dale Crover barði trommurnar. Dave var
afturmóti eini trommarinn við upptökur á Nevermind og In Utero
en á Incesticide léku Dale Crover, Danny Peters, Chad Channing
og Dave Grohl allir á trommur. Núna er Dave í hjómsveitinni
Foo Fighters en ekki lengur sem trommari heldur söngvari og
lagahöfundur. Í Foo Fighters er einnig Pat Smear en hann lék
stöku sinnum á gítar í Nirvana. Þeir hafa gefið út tvær plötur
og þykir tónlistarstíll þeirra svipa til Nirvana.