Klámleikari í Survivor
-Ameríka hneyksluð


Í ljós hefur komið að einn þeirra sem taka þátt í nýjustu Survivor þáttaröðinni hefur leikið í nokkrum klámmyndum.


Brian Heidek, sem nú er þrjátíu og fjögurra ára og selur notaða bíla í heimabæ sínum, hefur leikið mikið. Hann lék í sápuóperunum Melrose Place og Days of Our Lives en það sem vakið hefur meiri athygli er leikur kappans í klámmyndum á borð við Virgins of Sherwood Forest og Passions Obsession. Með þessari frétt fylgir mynd af kappanum, bæði eins og hann kemur fyrir í Survior: Thailand og einni af kvikmyndum hans.


-heimild: CNN