Ég held að það sé pottþétt að Nick fari næstur, þau voru ákveðin að fleygja honum í burtu áður en hann vann immunity og svo er hann búinn að vera að drepast í maganum, hann vinnur sennilega ekki immunity annað skiptið í röð.
Svona held ég að þetta fari.
Ogakor sambandið kýs burt Nick næstann, svo Amber, svo Elizabeth en halda Rodger eftir, því að hann er gamall og þau halda að sér steðji engin hætta af honum.
Eftir verða (mjög sennilega)
Colby, Keith, Tina og Rodger.
Þau tala saman um það að þau geti ekki veitt Colby samkeppni í aflgreinum og fleiru, svo að þau plotta um að losa sig við hann (þegar er svona stutt í milljón þá myndi fólk stinga ömmu sína í bakið).
Eftir verða Rodger, Tina og Keith.
Rodger og Tina verða orðnir svo miklir vinir þegar á þennan punkt er komið að þau ákveða að sitja ein að milljóninni, Keith fær sparkið burt.
Þegar kemur að því að velja sigurvegarann, þá er Tina búin að backstabba svo marga að engum líkar vel við hana, hinsvegar verða allir gamlir Kucha meðlimir hliðhollir Rodger og sennilega fleiri Ogakor líka, því hann er svo viðkunnalegur.