Rob er ábyggilega einn af þeim bestu sem hafa komið í Survivor…

Ég held með honum, en hann á ekki mikla möguleika á að vinna!!

Þeir sem eru núna í kviðdómnum hata hann (Dave og Alex) nema kannski Deena og svo eiga Heidi og Jenna eftir að koma og þá eru komin 4 atkvæði móti honum strax!…ekki nema að Alex eigi eftir að snúast hugur um Rob því að hann er svona, “haha, þarna náðuð þið mér” er svona alveg sama um þetta eða eikkað….

Besti möguleiki Rob er að draga Matt með sér í Final 2, þar sem allir finnast Matt vera geðbilaður og hver veit hvað hann gerir ef að hann fær milljón í hendurnar. Matt er líka ótrúlega heimskur maður að mínu mati. Eina vandamálið við að hafa Matt með sér í Final 2 er að Matt treystir Rob svo vel og þar með nokkuð öruggt atkvæði ef að Matt mundi ekki fara í Final 2.


Svo mundi ég halda að ef að Matt fer í final two þá mundi Christy og Butch miklu frekar velja Matt heldur en Rob, þar sem þau voru svona upprunalega alliance-ið……

….en mér gæti skjátlast þar sem að Rob fyrst og fremst var maðurinn sem að bjargaði þeim þremur og kom þeim lengra áfram í Survivor. Þau gætu allt í einu bara hugsað með sér að þó hann hafi verið að reyna að bjarga sjálfum sér þá bjargaði hann okkur líka og tók líka mikla áhættu með því að skipta um bandalag.

Það sem Rob gerði einnig sem að mér fannst nokkuð gott var að gefa Christy séns á að vinna milljónina, hún á skilið að vinna þó að ég hef alltaf fundist Christy vera leiðinleg og ég vildi hana út á fyrsta degi.

Að lokum finnst mér Rob vera með þeim betri sem hafa komið í Survivor frá upphafi, maðurinn er snillingur en hann því miður gerði rangt með að skipta um bandalag svo seint.