Hæ. Ég á Event TR-8 stúdíómónitora sem hafa virkað vel fyrir mig hingað til en allt í einu heyrist ekkert í öðrum þeirra. Ég tók hann í sundur og allar snúrur virðast tengdar og allt lítur vel út enda hafa þeir ekki verið hreyfðir eða orðið fyrir neinu hnjaski síðan ég keypti þá.
Veit einhver hvað gæti verið í gangi hérna? Hefur fólk lent í svona áður?

mbk.
Helgi Sæmundu