Fiðrildi

Ó Þú minnir mig á fiðrildi
Mér finnst ég eiga erindi
Svífur þöndum vængjum burt frá mér
Ó mér finnst þú koma
Holdi klædd í kvöld -
felur mér öll þín völd og gufar upp

Töfrar og tár
Daður og dár
Tími sem læknar engin sár
Þú flögrar allt um kring - gælir við mig
Þú misþyrmir mér og ég get ekki beðið

Ó mér finnst ég vera varnarlaus
Finn ilminn gegnum þykkt og þunnt
Samt með sigurglampa í augunum -
Ó mér finnst þú koma
Holdi klædd í kvöld - felur mér öll þín völd eitt augnablik
Eina stund -birtist mér en leysist alltaf aftur upp
Töfrar og tár
Daður og dár
Tími sem læknar engine sár

Þú flögrar allt um kring - gælir við mig
Þú misþyrmir mér í fyllingu tímans
Þú flögrar allt um kring - fangelsar mig
Þú flýgur í mitt fang mér finnst ég snúast í hringi