ÓÞOLANDI LAGIÐ

Þú átt eftir að fíla þetta lag
því að það er með upphækkun og klapp-kafla
eins sorglegt og það er
þá munt þú syngja með
og fá þetta á heilann
þetta óþolandi lag

NA NANNA NA
Þetta er óþolandi lag!
NA NANNA NA
Þetta er óþolandi lag!
NA NANNA NA
En svona eru lögin bara í dag

Textinn er hörmulegur og lagið er ljótt
líklega stolið líka en þú syngur með í nótt
það er alveg óþolandi
staðráðinn berst á móti
en svo endar þannig að þú raular í allan dag
þetta óþolandi lag

NA NANNA NA
Þetta er óþolandi lag!
NA NANNA NA
Þetta er óþolandi lag!
NA NANNA NA
En svona eru lögin bara í dag