Jónsi heitir í allvörunni Jón Jósep Snæbjörnsson. Hann er söngvari í hljómsveitinni Í SVÖRTUM FÖTUM og hefur sungið með henni frá því í september 1998 þegar fyrrverandi söngkonan Þóra varð að hætta vegna barnsburðar. Hann fæddist í Reykjavík um hádegi 1.júní 1977 og var alinn upp á Akureyri. Konan hans heitir Rósa Björgvinsdóttir og sonur hans Trausti og er tveggja ára.
Hér eru nokkur lög eftir hljómsveitina hans:
Nakinn
Þrá
Ekkert að fela
Einu sinni enn
Segðu mér
Tímabil
Rignir
Sís
Dag sem dimma nátt

Jónsi er núna að leika í Grease ásamt Birgittu, hann leikur Danna og Birgitta Sandí. Grease er búið að vera í gangi síðan í júní.
Í svörtum fötum voru á Galtalæk og Akureyri um verslunarmannahelgina, þannig að Jónsi hefur haft eitthvað að gera þá. Hann er líka búinn að vera að syngja á fullt af tónleikum upp á síðkastið.