Ég átti VTi Civic í 3 ár og hann bilaði aldrei á 40.000 km. akstri. Stelpan sem keypti hann af mér sagði að þetta hefði verið eini sambærilegi bíllinn sem ekki hefði verið sjúskaður og losaralegur svo vandaðu valið. Þetta var '99 bíll. Það sem er eftirminnilegast er stórskemmtileg vél en allt annað ekki í sama flokki. Lélegt lakk, bremsudiskarnir skekktust við að negla niður úr 180 í 0, kúplingin varð síðri eftir að hafa tekið 2 rönn í 5000 sn. - alls ekki daglegur akstur en hey maður verður...