Haltu áfram að safna, það er eitthvað enn til hjá Dananum, ég hef ekki töluna, en ég hef ekki áhyggjur, þar sem hann hefur tryggt sér töluvert af miðum að eigin sögn. Það eru þó Danir og Færeyingar um hituna einnig, svo það er sjálfsagt ekki sniðugt að bíða of lengi. Svo er þetta auðvitað borgað með kreditkorti, sem þýðir að reikningurinn kemur kannski ekki fyrr en 4-5 vikum eftir að maður borgar með kortinu eins og gengur og gerist með svona greiðslukortum.