ferðu kannski líka á íþróttaviðburði og tuðar í öllum þeim sem sitja nálægt þér hversu glataðar íþróttir eru? það er ástæða fyrir því að þetta heitir dvd -áhugamálið-… þetta er vettvangur fyrir þá sem hafa dvd sem áhugamál að ræða saman
myndin sem wall-e er alltaf að horfa á heitir Hello Dolly! og er söngleikur með Walter Matthau og Barbara Streisand (http://www.imdb.com/title/tt0064418/)
ég keypti mína ramma bara í ikea, litu ágætlega út… passaðu þig samt að kaupa ekki þessa ódýrustu, sem hafa litla málmbúta sem maður togar upp og svo ýtir niður til að festa, málmbútarnir losnuðu af hjá mér in no time, piece of crap
þar sem english patient er ein af mínum uppáhalds myndum, varð ég nokkuð áhyggjufullur þegar þú sendir inn mynd af henni, því það hefur verið fasti í mínu lífi að ég er aldrei sammála þér í einu né neinu þegar kemur að kvikmyndum. getur ímyndað þér hvað ég var feginn þegar ég smellti á myndina og komst að því að þú varst ekki hrifinn… high five skilru
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..