Ég smíðaði minn eiginn gítar þegar að ég var í 9. bekk. Ég fékk reyndar talsverða hjálp frá eldri bróður, en þið sjáið það að flestir ættu að geta smíðað sinn eiginn gítar/bassa fyrst að 14 ára gutti getur það. Ég smíðaði reyndar bara búkinn sjálfur, ekki hálsinn, eins og xtrmntr gerði með bassann sinn. Ég keypti gallaðann Washburn gítar í hljóðfærahúsinu og notaði hálsinn, pickuppa og allt draslið úr honum. Þessi gítar er ekkert lúxus hljóðfæri en hann er ansi flottur og ég er stolltur af...