Það kemur úr norrænni goðafræði. Hann er mjög áhugaverð persóna í henni, hér er aðeins um surt til gamans: Surtur (hinn Svarti) Eldjötunn sem fer um með logandi sverði í ragnarökum, sigrar öll goðin og eyðir heiminum með eldi sem nefnist Surtarlogi.
Nei, vinningshafinn fær ekki eintak af eigin smíði. Það hefði svo sem getað verið möguleiki, en þá hefði vinningshafinn þurft að bíða í 6 mánuði eftir eintakinu á meðan það fer í gegnum framleiðsluferlið. Ég vildi frekar að vinningshafinn fengi sín verðlaun strax. Varðandi það að Surtur sé byrjendagítar, þá er það úr lausu lofti gripið.
Þú mátt hannað þetta alveg eins og þú vilt, headstock og allt. Vinningsgítar verður smíðaður. Síðan er ekki sérstaklega fyrir íslenska lesendur þó hún sé búin til að Íslendingi. Annars eru allir landar sérstaklega velkomnir :)
Jú hann held ég var sá fyrsti til að gera solid body gítar, eða amk. með þeim fyrstu. Gibson byggði síðan á þeirri hugmynd með því að búa til betri solid body gítar. Gítarinn hanns Les Paul heitir The Log, en það var bara spíta með áfestum búk, sjá hér: http://mixonline.com/Online_Extras_Main_Page/Les_paul_photo_gallery/ Annars getur þú lesið um hann hér: http://en.wikipedia.org/wiki/Les_Paul
Les paul hannaði ekki samnefndan gítar, hann sponsoraði hann og spilaði ekki á neitt annað. Hann hannaði multitrack, delay, phaiser, tape-delay og fl. Hann var samt fyrst of fremst jazzari og spilaði undir hjá konunni sinni.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..