Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

rfm
rfm Notandi frá fornöld 40 ára karlmaður
1.018 stig
Lífið gengur út á að vera númer 1, ekki númer 2.

Mr. and Mrs. Smith (33 álit)

í Kvikmyndir fyrir 18 árum, 11 mánuðum
Það er kominn dágóður tími síðan ég sendi inn kvikmyndagagnrýni á þennan vef og ætla má að ég sé farinn að ryðga eilítið. En hvað um það, ég skellti mér á forsýningu Mr. And Mrs. Smith á miðvikudagskvöldið, og ég verð að viðurkenna það að ég vissi ekki alveg á hverju ég átti von á. Það er óhætt að segja það að myndin byrjaði vel, hún byrjaði strax á góðum brandara hjá hjónabandsráðgjafa þeirra Angelinu Jolie og Brad Pitt sem leika aðalhlutverkin í þessari mynd í leikstjórn Doug Limans (The...

Bestu leiktilþrif karla - að mínu mati (48 álit)

í Kvikmyndir fyrir 19 árum, 5 mánuðum
Eftir margra daga pælingar og vangaveltur þá hef ég sett saman lista minn yfir bestu leiktilþrif allra tíma, í karlaflokki. Þegar ég fór fyrst að velta fyrir mér hverjir gætu verið á listanum, komst ég að því að ég væri að vinna óvinnandi verk því það er fáránlegt hvað það eru margir góðir leikarar sem hafa brillerað, oftar en einu sinni. Í gær þá sá ég eins lista og minn sem blaðamaður hjá stelpublaðinu Orðlaus gerði og ég verð að segja að sá listi er meingallaður. Ég og blaðamaðurinn erum...

Spiderman 2 - endalaus vonbrigði (54 álit)

í Kvikmyndir fyrir 19 árum, 10 mánuðum
Ég get ekki orða bundist hvað ég varð fyrir miklum vonbrigðum með nýju Spiderman myndina. Myndin hefur fengið víðast hvar góða dóma og aðsóknin á myndina hefur slegið hvert metið á fætur öðru. En skoðun mín á myndinni er þessi: hrikalega leiðinleg. Fyrir það fyrsta, Peter Parker er bara svo leiðinlegur karakter. Og það vill svo til að Peter Parker er í aðalhlutverki í þessari mynd en ekki Spiderman. Það er alltaf verið að takast á hvort hann eigi að vera Spiderman eða ekki. Og mér fannst það...

Apartment to Rent (6 álit)

í Húmor fyrir 19 árum, 10 mánuðum
Fékk þennan sendann í pósti og hann er nokkuð góður. A businessman meets a beautiful girl and agrees to spend the afternoon with her for $500. So they do. Before he leaves, he tells her that he does not have any cash with him, but that he will have his secretary write a check and mail it to her, calling the payment: “RENT FOR APARTMENT.” On the way to the office he regrets what he has done, realizing that the whole event was not worth the price. So he has his secretary send a check for $250...

Deep Purple tónleikarnir 24. júní (26 álit)

í Gullöldin fyrir 19 árum, 11 mánuðum
Það er mikið hægt að segja um tónleikana sem ég fór á í gær, jákvætt og neikvætt, en ég ætla að hafa þetta stutt. Deep Purple er snilldarhljómsveit sem gert hefur marga heimsfræga slagara sem lifa enn þann dag í dag góðu lífi. Þar má helst nefna Smoke on the water, Hush og Black Night sem eru þeirra þekktustu lög. Í gær, voru flest lögin kynning á nýju plötunni þeirra, Bananas, og þekkti ég þau ekki. Klukkutími af tónleikunum fóru í að kynna þessi nýju lög og það var ekki fyrr en þeir...

Troy! (36 álit)

í Kvikmyndir fyrir 20 árum
Ég fór á þriðjudaskvöldið á forsýningu stórmyndarinnar Troy með Brad Pitt, Orlando Bloom og fleirum stjörnum í aðalhlutverki. Ég var búinn að bíða eftir þessari mynd í meira en ár; tilhlökkunin var mikil og væntingarnar miklar. Mér finnst Odysseifskviða og Illionskviða eftir Hómer vera algjör snilld og efniviðurinn til kvikmyndar alveg pottþéttur. Þess vegna kom mér það svo á óvart að myndin skuli ekki vera betri en hún er. Söguþráðurinn er bara ekki alveg nógu góður. Handritið er ekki...

The Passion of The Christ (24 álit)

í Kvikmyndir fyrir 20 árum, 2 mánuðum
Það er alveg á hreinu að Mel Gibson er afbragðsgóður leikstjóri. Píslarsaga Krists er hans þriðja mynd sem hann leikstýrir en í fyrsta skipti er hann ekki fyrir framan vélina heldur aðeins fyrir aftan hana. Fyrri myndir hans tvær, The Man Without a Face og hin stórgóða Braveheart, eru virkilega vandaðar myndir sem bera á sér gott vald á kvikmyndalistinni. Sérstaklega þó Braveheart en hún vann Óskarsverðlaunin sem Besta myndin árið 1996 og Mel Gibson vann bestu leikstjórnina. Í Píslarsögu...

Óskarinn 2004 - Spá (19 álit)

í Kvikmyndir fyrir 20 árum, 3 mánuðum
Jæja, þá er Óskarinn um næstu helgi og það er því ekkert því til fyrirstöðu að koma með spána á undan hinum. Í ár er maður í erfiðari aðstöðu en áður því Óskarinn er núna 29. febrúar en í fyrra var hann 23. mars. Ég hafði því séð miklu fleiri myndir í fyrra en ég hef gert nú. Ég hefði viljað vera búinn að sjá fleiri myndir. Það er mikill mínus og mun hafa einhver áhrif á spá mína. Ég býst því við að ég verði ekki eins sannspár í ár og í fyrra. Ég mun þó gera mitt besta og ég hef aflað mér...

Frjálsíþróttafréttir (6 álit)

í Frjálsar íþróttir fyrir 20 árum, 3 mánuðum
Jæja… það hefur mikið verið að gerast í frjálsum undanfarið úti í hinum stóra heimi. Þetta eru flest gamlar fréttir en ég ætla samt að koma með smá pistil. Það sem ber hæst er auðvitað heimsmetin tvö; hin ungi Bekele setti glæsilegt heimsmet í gær í 5000 m hlaupi innanhúss, hljóp á 12:49.60 mín og bætti gamla metið hans Gebrelaisse um 80/100. Glæsilegt hjá honum. Hann var búinn að gefa út þá yfirlýsingu að hann ætlaði sér að setja heimsmet. Þeir tveir eru í sérflokki í löngu hlaupunum og það...

Gítarsnillingurinn Eric Clapton (23 álit)

í Gullöldin fyrir 20 árum, 4 mánuðum
Eric Patrick Clapton fæddist í Ripley Englandi þann 30. mars 1945. Hann er sonur Patriciu Molly Clapton og Jerry Fryer. Fryer seinna fór frá þeim og í framhaldinu yfirgaf mamma hans Clapton og skildi hann eftir hjá ömmu sinni og afa sem ólu hann upp. Hann var alinn upp í blekkingu, mamma hans var sögð systir hans og gamla fólkið þóttist vera foreldrar hans. Þegar hann var 9 ára fékk hann að vita sannleikann og fékk það ekki mikið á hann, þótt ótrúlegt sé. Þegar hann var 15 ára fékk hann sinn...

Back to the Future I (6 álit)

í Kvikmyndir fyrir 20 árum, 6 mánuðum
Vona að þessi grein sé eitthvað skárri en greinin mín um Brad Pitt. Sú mynd sem gerði Robert Zemckis að alvöru leikstjóra var Back to the Future þar sem Michael J. Fox og Christopher Lloyd fóru á kostum sem Marty McFly og Dr. Emmett Brown. Back to the Future er ein af mínum uppáhaldsmyndum og ég skemmti mér alltaf konunglega að horfa á hana. Hún er frá 1985 og tölvutæknin er alltaf að verða betri og betri og myndin er full af brellum sem mér finnst vera nokkuð góðar miðað við að hún er 18...

Brad Pitt (21 álit)

í Kvikmyndir fyrir 20 árum, 6 mánuðum
William Bradley Pitt fæddist 18. desember 1963 í Oklahoma. Ég nenni ekki að reka ævisögu hans þannig að ég fer strax í það skemmtilega. Hann á fallega konu. Þeir sem vita ekki hver það er ættu að fara lesa Moggann. Hann var einu sinni með Gwyneth Paltrow, bað hennar en hún neitaði. Mistök. Hún er reyndar í dag að fara giftast Chris Martin, söngvara Coldplay. Brad var í rauninni heppinn að Gwyneth neitaði sér því Jennifer Aniston er miklu flottari. En Gwyneth hefur unnið Óskar!! Brad Pitt er...

Robert Zemeckis (10 álit)

í Kvikmyndir fyrir 20 árum, 7 mánuðum
Robert Zemeckis er einn af mínum uppáhalds leikstjórum og hefur í gegnum tíðina leikstýrt fjölmörgum þekktum og góðum kvikmyndum fyrir utan það að skrifa handrit og framleiða aðrar myndir. Það má segja að hann hafi “komist á kortið” árið 1984 með myndinni Romancing the Stone með Michael Douglas og Kathleen Turner. Ári seinna leikstýrði hann myndinni og skrifaði handritið að Back to the Future sem er ein af mínum uppáhalds myndum. Hún var tilnefnd til fjögurra Óskarsverðlauna og van ein,...

5 mestu frjálsíþróttakonur frá upphafi (8 álit)

í Frjálsar íþróttir fyrir 20 árum, 8 mánuðum
Ég ætla að gera heiðarlega tilraun til þessa að reyna gera lista um fimm mestu frjálsíþróttakonur frá upphafi. Ég verð að viðurkenna það að það er helmingi erfiðara en að gera um karlana því ég þekki konurnar minna en karlana. Þetta er allavega minn listi… 1. Jackie Joyner-Kersey. Á heimsmetið í sjöþraut kvenna, 7291 stig. Hún var fyrsta konan til að fara yfir 7000 stig í sjöþrautinni og það hafa aðeins tvær leikið síðan, Larisa Nikitina-Turchinskaya (7007 stig) og Carolina Klüft (7001...

6 mestu karlfrjálsíþróttamenn frá upphafi (13 álit)

í Frjálsar íþróttir fyrir 20 árum, 8 mánuðum
Ég ætla að koma því strax fram að þetta er mitt álit og hef ég byggt upp listann á árangri, heimsmetum og sigrum. Mjög erfitt að gera upp á milli alla þessara ótrúlegu íþróttamanna en ég ætla að gera mitt besta. 1.Carl Lewis. Ótrúlegur íþróttamaður. Setti mörg heimsmet á löngum og góðum ferli, bæði í 100 m og langstökki. Á best 9,84 sek í 100 m og 8,91 m í langstökki. Sigraði á 65 mótum í röð í langstökki. Það þurfti engan annan en heimsmethafan Mike Powell til að sigra hann. CL á met sem...

Heimskir kvenmenn... eða nei, karlmaður... (9 álit)

í Húmor fyrir 20 árum, 8 mánuðum
Ég fékk þennan í meili, hann er helvíti góður. Three business men were sitting in a bar and were drinking and discussing how stupid their wifes were. The first says: “I tell you, my wife is so stupid. Last week she went to a supermarket and bought $300 worth of meat because it was on a sale, and we dont even have a fridge big enough to keep it in!” The second agrees that she sounds pretty thick, but says his wife is thicker. “Just last week, she went out and spent $17000 on a new car,” he...

Stigamót Breiðabliks (3 álit)

í Frjálsar íþróttir fyrir 20 árum, 9 mánuðum
Stigamót Breiðabliks var nýjung þegar hún var kynnt í vetur. Sigurvegarar stigagreinar fengu 5 stig, sá sem lenti í öðru sæti fékk 4 stig og svo koll af kolli. Einnig voru mætingarstig fyrir þá sem mættu og kepptu en fengu ekki stig fyrir sæti. Svona gerð að móti hafði aldrei verið gert áður og það var kominn tími til að Breiðablik tók af skarið. Að mínu mati er þetta mót komið til að vera og vona að á næsta ári verði ennþá betri þáttaka í allar greinar. Þessi fimm mót voru almennt mjög vel...

Cathy Freeman (4 álit)

í Frjálsar íþróttir fyrir 20 árum, 10 mánuðum
Morgunblaðið greindi frá því í morgun að Ástralski frumbygginn, Cathy Freeman, sé hætt að stunda frjálsar íþróttir. Þetta eru mjög leiðinlegar fréttir, sérstaklega þar sem Cathy Freeman er sú eina sem hefði getað veitt Ana Guevara einhverja keppni á ÓL á næsta ári í 400 metra hlaupi. Eins og flestir vita þá vann Cathy Freeman 400 metra hlaupið mjög örugglega á ÓL í Sidney fyrir þremur árum síðan og varð þjóðhetja í heimalandi sínu. Þá hljóp hún úrslitahlaupið á 49,11 sek. Hennar besti tími...

Saga Carl Lewis (2 álit)

í Frjálsar íþróttir fyrir 21 árum
Carl Lewis heitir réttu nafni Frederick Carlton Lewis. Hann er fæddur 1. júlí 1961 og verður því 42 ára nú í sumar. Carl átti ekki langt að sækja íþróttahæfileika sína en foreldrar Carls æfðu lengi vel frjálsar íþróttir, m.a. varð móðir hans, Evelyn, í 6. sæti í 80 m grindahlaupi á Pan-American leikunum árið 1951. Samkvæmt læknisráði var ákveðið að senda Carl á íþróttaæfingar en hann var mjög grannur þegar hann var lítill. Sjálfur sagði hann að á sínum allra yngstu árum hefði hann verið...
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok