Ég er ekki að segja að það sé endilega í þínu tilfelli. En það segja þetta ALLIR sem ég þekki “ég borða geggjað mikið en þyngist ekkert”, en svo kemst í ljós að þeir borða í rauninni ekkert mikið og borða vitlaust. Ég gerði meira að segja sömu mistök. Ég hélt að ég borðaði geggjað mikið, fékk mér solid morgunmat, borðaði hálfa esjuna í hádeginu og tróð í mig í kvöldmat. Þetta er bara ekki nóg, það þarf að borða meira ef maður er að æfa á fullu.