Í dag er ekki hægt að hlusta á lögguna því hún eins og slökkviliðið og hjálparsveitirnar, eru komnar í Tetra. Þú getur ekki, svo ég viti til, hlustað á Tetra nema með öðru Tetra tæki með aðgangi, því Tetra er Digital ekki Analog. Ef þú gætir hlustað á þetta í venjulegum skanner þá myndir þú líklega heyra lík hljóð og í gömlu módemi eða faxtæki.