Ég ætla mér að fá mér tvö lítil tattoo í sumar, eitt frekar stórt samt en hitt minna. Ætla að fá mér loppufar fyrir hverja kisu sem ég á og staðsetja það á kálfann og blóm á ristina. Blómið vil ég að sé teiknað fríhendis en ég er samt ekki búin að ákveða hjá hverjum. Síðan ætla ég mér að fá mér aftur gat í tunguna, tók það úr vegna óþæginda. Allt í einu eftir að ég var búin að vera með gatið í eitt ár þá fór tungan að bólgna upp aftur og ég fékk sár í góminn. Hef aldrei lent í neinum...