Ég á eitt myndband með Michael Angelo Batio sem ber nafnið Speed Kills, það er mjög gott myndband að mínu mati. Þá tekur hann bara einhver sóló live og það kemur mjög vel út. Ég hef ekki hlustað mikið á Joe Satriani eða Steve Vai, hef aðeins heyrt eitt lag með Steve Vai,“The Audience Is Listening”. Hins vegar hef ég hlustað mikið á Yngwie Malmsteen og er hann bara mjög góður að mínua mati og teknískur. Hann hefur líka samið fullt af góðum lögum með hinum fínustu gítarsólóum að mínu mati.