NÝJASTA grínmynd Wayans-bræðra tekur allar hryllingsmyndir síðustu ára og skellir þeim í mixerinn, og svo er allt heila batteríið að sjálfsögðu kryddað með bröndurum frá helvíti. Myndin, sem upphaflega átti að heita Scream If You Know What I Did Last Halloween, ásamt fleiri titlum sem eru of langir til að telja upp hér, segir frá morðum sem framin eru í kringum fallegan úthverfaskóla. Nemendurnir þurfa að takast á við grímuklæddan morðingja sem veður um með gemsann og hringir dónasímtöl....