Sammála með að platan sé fín, og hef aldrei sagt neitt annað. Öll spilamennska er til fyrirmyndar og þessi drungi sem er yfir plötunni kemur mjög flott út. Já, Blaze er ekki Bruce og ég vona að allir geri sér grein fyrir því, nema náttúrulega að þið séuð alglörir froðuheilar. En þó svo að hann sé kannski ekki beint lélegur söngvari, að þá er hann oft á tíðum allt of flatur, og þá sérstaklega í Fortunes of War, sem er mjög fínt lag. Og öll hans framkoma, hvort sem það var á sviði eða í...