Þessi x og y útgáfa einfaldaði þetta ekki beint fyrir mér. En bottomlænið er að greinarhöfundur talaði um afturhaldskommatitti og gaf minnir mig einhverja lýsingu á þeim. Þú passar að því er virðist við þá lýsingu og spyrð hvort að hann sé að ávarpa þig og bætir svo við “veist þú hvað afturhaldskommatittagrey er yfir höfuð.” Þá svara ég í nett vondu eftiraðveranýbúinnaðtapaleikmeðeinu-skapi og segi, án þess að vita nákvæma greiningu á umræddu hugtaki, “líklega fólk eins og þú”(enda virðist...
Nei, það væri meira eins og ef einhver segði “kaktusar eru með stórar og beittar nálar” og þú tækir það til þín því þú værir með stórar og beittar nálar á líkamanum þá værir þú að öllum líkindum kaktus. Svo er þetta slappt dæmi hjá þér því að kaktusar taka yfirleitt ekki mikið til sín.
Ég sagði aldrei afturhaldskommatittagrey við neinn og þarf því ekki að útskýra eitt né neitt. En það er greinilega fólk eins og þú fyrst að þú tekur það til þín, eins og ég sagði áður.
Ég sagði aldrei að þetta særði mig persónulega en þetta svar mitt virðist hafi farið fyrir brjóstið á þér. Ég var bara að segja að úti í heimi var öllum sama og enginn virtist hafa tekið eftir þessu, eins og mátti búast við, og þess vegna fannst mér þetta heimskulegt.
Jú, viðskiptabannið á S-Afríku í mótmælaskyni við aðskilnaðarstefnuna, árið 1988 minnir mig, setti mikla pressu á stjórnina. Aðskilnaðarstefnan var svo afnumin stuttu síðar. Það eru nokkuð jákvæð áhrif. Annars hafa viðskiptabönn lítið virkað.
Ókei, ég lét kannski blinda mig af nafninu National Socialism(nafnið getur nú samt ekki verið alveg út í bláinn, hlýtur að tengjast flokknum eitthvað). En ég get ekki verið sammála þér með þetta: “Ég hélt að allir vissu að stefna sem heldur því fram að aðrir séu verri fyrir skoðanir sínar eða kynþátt væri hægri-sinnaður.” Þetta er fasismi og fasismi einskorðast ekki til hægri. Nú hallast ég frekar langt til hægri en það örlar ekkert á fasisma í mínum skoðunum. Reyndar veit ég ekki um marga...
“Unglingar og sjálfstæðismenn takið eftir.” Ert þú að gefa í skyn að Sjálfstæðismenn kunni ekki að halda uppi málefnalegum umræðum. Það eru nú aðallega stjórnarandstöðuliðar sem fara út í ærumeiðingar og skítkast. Ekki vera með eitthvað kjaftæði þótt þér líki ekki við umræddan flokk.
Nasismi er til vinstri, National Socialism. Burtséð frá því, er fólk í alvöru enn að verja kommúnismann í Sovétríkjunum og víðar?? Kommon, látið ekki eins og fífl.
“John Lennon. Líferni hans undanfarið hlýtur að fara bráðum að draga hann til dauða. Þvílík synd. Þetta var nefnilega einu sinni mjög góður tónlistamaður og hugsjónamaður. Synd.” Nei, í þessu skynja ég ekki mikla kaldhæðni. Kannski a næmur maður eins og þú getir útskýrt hana fyrir mér? Ég hélt nú ekki að hann vissi ekki að hann væri dauður en ég hélt að hann væri bara að reyna að vera eitthvað fyndinn. En ég tek ekki eftir neinni kaldhæðni.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..