Kurt Cobain var snillingur á tónlistarsviðinu. En ef ég hefði kynnst honum hefði ég hatað hann. Ég er búinn að lesa tvær ævisögur um hann og myndin af honum sem maður fær úr þeim báðum er að hann var þunglyndur, sívælandi, mislunda, dónalegur og hranalegur aumingji sem vorkenndi sjálfum sér alveg rosalega mikið þrátt fyrir velgengnina. En það er svona, snillingar þurfa alltaf að vera snarbilaðir til að geta verið snillingar.