þegar klukkuna vantar 5 mínútur í 7 opna ég augun, ég er tilbúin í fyrsta bardagann , bardagann við klukkuna! Ég bíð eftir því að hún byrji að ónáða mig með sínum óþolandi óhljóðum. Aðeins 2 mínútur eftir , ég fer að lyfta hendinni, ég ætla ekki að þurfa að hlusta á þetta “garg ískur” í meira en sekúndu , ég ætla ekki að tapa! Klukkan er að gera sig tilbúna til að vekja einhvern af sínum djúpstæða og róandi svefni bara til að minna hann á að hann lifir ömurlegu lífi, annað hvort fastur í...