Ibanez gítarar (ég áætla að þú sért með e-rn RG eða S gítar) eru yfirleitt smíðaðir úr basswood, sem gefur mjög bjartan tón. EMG81 eru mjög bright pickupar, þannig að ég myndi ekki fá mér EMG + þeir eru active, og að troða 9v batteríi undir gormana innan í gítarnum(e-r útlendingurinn gerði það víst) er enginn leikur. Myndi frekar fá mér PAF Pro pickupana frá DiMarzio, henta betur, og allir pro-arnir sem nota Ibanez nota þá pickupa. Svo eru þeir líka passive.