Ekki gera það… ekki láta bara einhvern gata þig sem hefur ekkert vit á hreinlæti, ekki fara á bak við foreldra þína. Þú getur fengið heiftarlega sýkingu, skakkt gat etc. og þar að auki myndirðu missa allt traust foreldra þinna. Engin stofa gatar krakka undir 18 ára án leyfis foreldra. Það sem þú skalt hinsvegar gera, er að reyna áfram að tala við mömmu þína og fá hana til að samþykkja að þú fáir þér gat. Nú eða bara í versta falli, bíða þar til þú ert orðin nógu gömul :)