Síðast þegar ég fór þá tók ég inn eina naproxen hálftíma áður en ég fór. Ég var að fara að fá mér á bakið og vissi að ég yrði töluvert lengi, hafði ímyndað mér að það væri rosalega vont að flúra yfir hrygginn og rifbeinin. Hvort að það var verkjatöflunni að þakka eða ekki, þá var þetta alveg þolanlegt, ekki gott en þolanlegt. Skrýtnasta var samt að ég fékk rosalega þörf til að bíta í eitthvað, fór að naga hettuna á peysunni minni alveg í tætlur þangað til ég mundi að ég var með tyggjó með...