Ég og minn fyrrverandi hættum saman með því að ræða málin og ákveða það að hætta saman bara. Myndi persónulega ekki vilja gera neinum það að hætta með honum í gegnum sms eða msn, vil frekar ræða málin og hætta á góðum nótum.
Ég gæti teiknað mynd fyrir þig en er ekkert allt of góð í að mála mannfólk. Getur skoðað nokkrar blýantsmyndir frá mér á eftirfarandi link : http://stereozombiez.deviantart.com/gallery/#Pencil-drawings
Ég var eitt sumar að sitja í gallerýi (Listsmiðja Art2b í Korputorgi, veit ekki hvort hann sé enn með fólk að mála á staðnum þar) og málandi, fékk sýningrapláss á móti því að ég hjálpaði aðeins til í afgreiðslunni. Seldi alveg nokkur málverk þar.
Já, þær væla þó þær séu inni, þeim langar bara meira út. En ég held að svona aðgerð sé um 13 þús, hef ekki gáð að því nýlega samt, best að hringja á hverja dýralæknastofuna fyrir sig og tékka á því. Annars er líka hægt að hafa kisuna á pillunni.
Helstu vandamál sem ég myndi tengja við ógelda læðu: óuggandi hávaði bæði í henni og fressum í hverfunu þegar hún er að breima (s.s. baby-making time). Sumar læður hafa þvílíkan hávaða þegar þær eru að breima, en ef þær eru ekki með hávaða þá eru fressar fyrir utan að væla á hana.
Sumir högnar eru enn með pokann utan um kúlurnar eftir að þeir eru geldir, en ef hann er með kúlur þá er hann bara enn með djásnin. Bætt við 4. júlí 2010 - 19:48 Prófaðu bara að þreifa á honum og sjá hvort hann sé með poka eða kúlur í pokanum. Ef hann er með kúlur þá hefur bara einfaldlega verið logið að þér um að hann sé geldur.
Ég hugsa að þetta sé svipað og með mannfólkið, við tökum misvel í missir á ástvin. Svo kisi gæti allt eins aldrei komist yfir svona missir eða kannski eftir mánuð eða tvo, maður veit aldrei.
Sammála því sem Ameza er að segja. En ég ætla að benda þér á Verkfæralagerinn í Smáratorgi ef þú ert að leita þér að einhverju ódýru. Mér finnst mjög þægilegt að kaupa striga, penslasápu og pallettur þar. Svo selja þeir líka ódýra málningu, m.a. í svona byrjendakittum (með mismunandi litum saman í pakka s.s.) Annars myndi ég kaupa penslana í Litir og Föndur eða Pennanum, þar sem penslarnir í Verkfæralagernum eru ódýrir og endast illa (hárin alltaf að losna og enda á málverkinu).
Gleymdi að taka það fram að myndin er máluð eftir ljósmynd Bætt við 21. apríl 2010 - 22:39 Linkurinn virkar ekki þarna svo hér er hann http://sooper-deviant.deviantart.com/art/Amur-Tiger-0992-80046713
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..