Var í þessari stöðu fyrir ári, hef alltaf ætlað í MH en þó langaði alltaf í bekkjakerfi, svo komst ég ekki inn í MH og fór í MK í eina önn þá hugsaði ég alvarlega að fara í bekkjarkerfi, því mér leiddist MK svo óskaplega en ég fór samt í MH því ég hef alltaf ætlað í hann. Og viti menn ég elska áfangakerfið í MH gæti ekki hugsað mér að fara í bekkjarkerfi núna, þú ræður algjörega sjálf náminu þínu og kynnist miklu meira fólki! Ég var frekar feimin í fyrra og vissi ekki alveg hvernig ég ætlaði...
Var í MK fyrir áramót, hann er ömulegur, þú mátt ekki vera í skóm inni, hvað er það?! Ég ymyndi frekar mæla með MS þótt ég þekki hann ekki af reynslu en hef heyst að þetta sé algjör skenkfest. MH,Kvennó,MR eða Versló er málið.
Það er jú mikið af fólki sem leggur í einelti eru svokallaðir “hnakkar” en mér finnst óþæilegt þegar fólk er að alhæfa, því ég þekki fullt af ágætis fólki sem eru hnakkar og góðir vinir mínir. Það eru bara allskonar fólk í allskonar athöfnum, hver veit nema að skátafundur sé uppfullur af einelti og ég get ekki ýmindað mér að það séu mikið af “hnökkum” þa
Já svo hef ég líka fengið þessar upplýsingar hjá vinum og vandamönnum sem hafa verið að stússast í kringum þetta. Þetta er svekk ég veit, en þá á víst að vera ekkert mál að flytja lögheimilið sitt, bara ef þú þekkir einhvern í Reykjavík.
Jesus Christ Superstar, E1ntak, Grænu engin hinum megin og Skilaboðaskjóðuna. Fæ líka oft frítt í leikhús, en oftast samt bara áhugamannaleikhús. Nýti mér það bara ekki nógu oft.
Hún var nátturlega rugl fyndin afþví að það gerist ekki neitt. Lagið var spilað þrisvar sinnum í gegn ogég hló allann tímann í öll skiptin sem ég sá þessa sýningu.
Ég fór í fyrra, og er að fara aftur núna. Þetta er æðislegt upplifun, þetta fer allt fram á ensku, allavega langflest. Ég mæli með þessu þið kynnist skemmtilegum krökkum og lærið leiklist í leiðinni. Ég er enn í sambandi við marga krakkana sem ég kynntist bæði íslensku og hina.
Vá hvað ég hló í High school musical þegar þau voru að dansa og syngja um það hvað það væri asnalegt að dansa og syngja. Mér fannst Hairspray samt alveg ágæt. En þessi strákur er alltof mikill súkkulaði strákur fyrir mig. -Ekki ætlunin að móðga neinn samt, þetta er bara mín skoðun.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..