Jamm. Þeir sem eru mest fyrir árekstra, slys, blóð o.s.frv. ættu að horfa á aðrar íþróttir en F1. Kaninn er mikið fyrir klessubílakappakstur sem skýrir að hluta til hversu litla velgengni F1 hefur átt að fagna í USA. Evrópubúar hafa hins vegar þótt fágaðari og þar af leiðandi hafa þessar bílablóðsíþróttir ekki átt fylgi að fagna í Evrópu. Nú um næstu helgi á að gera enn eina tilraunina til að athuga hvort Kaninn sé búinn að átta sig á hversu skemmtileg F1 getur verið.