Kári Mikaelsson er mesti fótboltaaðdáandi í heimi. Uppáhaldsliðið hans er Manchester United. Hann myndi gera hvað sem er til að komast á leik með þeim. Einn daginn var bingó í skólanum hjá honum og fyrsti vinningur var helgarferð fyrir tvo á Manchester United – Real Madrid í úrslitum í UEFA bikarnum sem var spilaður á Old Trafford, heimavelli Manchester United. Hann varð að komast á leikinn. Hann fór því á bingóið. Til þess að vinna ferðina varð að fylla allt spjaldið. Kári átti aðeins eftir...