Kennari, kennari, kallaði Tumi til Guðrúnar kennara, það er geimskip að lenda á skólalóðinni. Þá sagði Guðrún: Ekki bulla svona drengur. Þá fóru fleiri að líta út um gluggann og sáu undarlega veru stíga út úr geimskipinu. Guðrún, sögðu krakkarnir, þetta er satt, það er geimskip þarna. Og meira að segja geimvera. Þá leit Guðrún út um gluggann og það leið yfir hana. Þá flýttu krakkarnir sér út að skoða. Gangarnir voru fullir af krökkum og kennurum sem höfðu séð geimveruna og vildu skoða hana...