Symphony X hefðu nú kannski átt að vera þarna líka, flokka þá meira sem powermetal samt. Elska Paradise Lost. Scar Symmetry þekki ég líka, fannst þeir osom í svona sex vikur og fékk svo algjört ógeð á þeim. Lamb of God hef ég aðeins hlustað á, ekki sérlega hrifinn af því sem ég hef heyrt. Þarf að tékka á hinum á þessum lista hins vegar, takk fyrir svarið :) Og já, Figure Number Five virðist vera ágætur, sömuleiðis A Predator's Portrait. Söngvarinn hjá þeim finnst mér frekar leiðinlegur samt.