Eins og aðrir hafa sagt, þá er þetta númer ekki til og ekki TA-E13 heldur. Leiðinlegt að heyra annars, en ertu viss um að hann hafi verið að reyna þetta? Það er alveg margoft þegar kattarófétin hanga undir bíl hjá manni og maður sér þau ekki. :/
Blessaður. Ég er mjög svo hlynntur málfrelsi á vefnum og sá ekkert athugavert við svar þitt þar til ég las síðustu tvær línurnar. Mér finnst ég hafa séð þig senda inn þónokkuð magn af vafasömu efni undanfarið og ert þú því nú kominn á annað brotastig. Kveðja, Steini
Það er ekki erfitt að hlægja af svona ef maður þekkir málið ekki persónulega. Mér finnst þetta hálf hlægilegt því þetta er svo asnalegt, eins rangt og það kann að hljóma. Ég vona þó ekkert annað en að hún komist í leitirnar - heil á húfi og hætti svo þessu veseni.
Ég ætla ekki að gefa mína skoðun á dópi (sama hversu stertk eða ‘dóplegt’ það er), fyrir utan að það er ólöglegt (hvort sem sú lög eiga rétt á sér eða ekki) og því klárt mál að lögreglan eigi að taka á öllum málum sem koma upp. Annars þekki ég það sæmilega af eigin reynslu þegar fólk bregst svona skemmtilega við (eins og konan með hundinn) eftir að hafa fengið smá info um að glæpur hafi átt sér stað að það einfaldlega gleymir að skoða allar hliðar málsins og koma fram eins og mönnum sæmir....
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..