Ég hef hvorki fengið reyk í augað né spáð í það hvernig það væri, get samt ímyndað mér að það sé vont. Það virðist sem þú sért svokölluð „kurteis reykingakona”, en þú segist ekki hafa viljann í að hætta að reykja, og að þú nennir ekki að slást við fráhvörfin… Hvað segirðu um að prófa það bara, og berjast við fráhvörfin með því að þú vitir að þú eigir dóttur, og viljir alls ekki að hún reyki þegar hún verður stór? =) Þú ofhuxar hlutina ekki neitt, þetta kallast bara niðurskrifaðar vangaveltur. c: