Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Gabbler
Gabbler Notandi frá fornöld 514 stig
“Það sem aldrei hefur gerst getur alltaf gerst aftur”

Einar Gunnar í leikbann. (2 álit)

í Handbolti fyrir 21 árum, 4 mánuðum
Einar Gunnar þjálfari FH og aðstoðarþjálfari hans Beggi verða fjarri góðu gamni á móti HK í kvöld…. Þeir voru settir í leikbann af aganefnd HSÍ vegna atvika á FH-Stjarnan leiknum. Guðjón Árna verður í staðinn við stjórnvölin hjá FH. Er Viggó kominn með tvo keppinauta :) hehe. Kveðja Gabbler.

Nýjan kork? (1 álit)

í Handbolti fyrir 21 árum, 5 mánuðum
Eru einhverjir með hugmyndir um nýjann kork. Landsliðið, HM, Deildin, Bikarinn eða eithvað annað?

FH - Valur og FH - Vikingur. (0 álit)

í Handbolti fyrir 21 árum, 5 mánuðum
Heilmikið um að vera i Kaplakrika i kvöld… Karlarnir taka a moti Val klukkan 8 en stelpurnar taka a moti Viking klukkan 6…. Hvet alla til að mæta.

Keppni innan huga/handbolti (2 álit)

í Handbolti fyrir 21 árum, 5 mánuðum
Ég er að velta því fyrir mér að ræsa einfaldri keppni hér fyrir okkur Huga/handboltamenn….. er einhver með hugmynd um hvernig svona keppni gæti gengið fyrir sig? Ég er að hugsa um svona hálfgerða draumaliðskeppni en samt ekki svo flókna. Ég er með ákveðnar hugmyndir en ég ætla að sjá hvað þið hafið að segja um þetta. Endilega látið í ykkur heyra ef þið hafið áhuga. Kveðja Gabbler.

Varðandi myndir. (0 álit)

í Handbolti fyrir 21 árum, 6 mánuðum
Það væri vel þegið ef einhver sem á digital myndavél og skellir sér öðru hvoru á völlinn gæti tekið myndir og sent þær inn. Flestar myndirnar sem eru hér inni eru fengnar að “láni” af öðrum netmiðlum. Væri gaman ef við værum með okkar eigin myndir :) Myndirnar þurfa ekkert að vera svo svakalega góðar.. heldur bara sýna dramann og spennuna sem fylgir handboltaleikjum. t.d. spenntir áhorfendur, dómari með gula eða rauða spjaldið á lofti, leikmenn að rífast, hraðaupphlaup, leikmenn að fagna og...

Lengd milli kannana? (4 álit)

í Handbolti fyrir 21 árum, 6 mánuðum
Hvað finst ykkur um að eigi að líða langur tími milli kannana? 3 eða 5 dagar (eða eithvað annað) Því styttri tími því meira rennsli á könnunum… en því miður ómarktækari könnun. En langur tími gæti valdið mikilli uppsöfnun á könnunum. (12 í bið núna). Endilega komið með komment.

Góð viðbrögð. (1 álit)

í Handbolti fyrir 21 árum, 6 mánuðum
Sælir. Það mætti halda að stífla hafi losnað hjá handboltaáhugamönnum. Í dag eru komnar inn 9 greinar á þetta áhugamál sem er heldur mikið miðað við að í heildina hefur ekki verið sent inn nema 89 greinar. Ég vil þakka ykkur fyrir þessi góðu viðbrögð og ég vona að hér eigi eftir að vera mikið fjör í vetur. Kveðja Gabbler.

Rökþraut vikunnar (8 álit)

í Heimspeki fyrir 21 árum, 6 mánuðum
Sælir. Hér kemur enn ein rökþrautin. Síðasta var svona í erfiðari kanntinum og fékk ég í raun ekki neitt svar við henni…. sem er mjög slæmt því ég hef ekki svarið. Ef þið hafið það ENDILEGA sendið mér það. Þraut 4. Tölfræðileg könnun segir til um að börn með stórar fætur séu betri í lestri heldur en börn með litlar fætur. Hver er skýringin á því? Jæja.. sendið mér svarið. Kveðja Gabbler.

Ísland 26 - 32 Egyptaland (4 álit)

í Handbolti fyrir 21 árum, 6 mánuðum
jæja… Við töpuðum fyrir Egyptum. Ætli það þýði ekki 8. og síðasta sætið. Leiðinlegt að tapa fyrir Egyptum sem eiga að vefa lélegri í handbolta en við. Vonandi eigum við eftir að toppa á réttum tíma (HM). Kveðja.

Unnum ekki svía. (0 álit)

í Handbolti fyrir 21 árum, 6 mánuðum
Við náðum ekki að leggja svía í þeta skiptið. 31 - 25 varð niðurstaðan í leiknum. Þá þurfum við að vinna Egypta til að vinna 7. sætið. Kveðja.

Rökþraut vikunnar (0 álit)

í Heimspeki fyrir 21 árum, 6 mánuðum
Sælir. Hér kemur ein rökþraut. Hún er í einfaldara lagi þessa vikuna. En svarið við síðustu var að sjálfsögðu að hann gaf körfuna með einu eplinu. Þraut 3. Þrír verkfræðingar sóttu um starf. Þegar þeir komu til viðtals var ákveðið að þeir gengjust undir dálítið próf. Þeim var boðið inn í herbergi þar sem voru engir gluggar og veggir berir og aðeins eitt ljós í lofti og eitt borð við einn vegginn. (Með öðrum orðum: engin hjálpartæki.) Á borðinu voru 7 miðar. Fimm voru hvíti en tveir rauðir....

Kaupiru heimspekibækur? (10 álit)

í Heimspeki fyrir 21 árum, 6 mánuðum
Ég er hrifnastur af því að leigja þær á bókasafni. Ef ég ætlaði að kaupa allar þær bækur sem mig langar í þá þyrfti ég bæði að taka stórt bankalán og kaupa stærri íbúð. Allar bókahillur eru troðfullar (og rúmlega það) af bókum. Annars er ég að lesa bók þessa dagana sem heitir “Veröld Soffíu” og nýbúinn með “Málsvörn stærðfræðings”. Einnig las ég bókina “Er vit í vísindum” og tvær bækur eftir Þorstein Gylfason. Hvað eru menn annars að lesa þessa dagana?

Tengja tölvu við vélbúnað? (6 álit)

í Vélbúnaður fyrir 21 árum, 6 mánuðum
Getur einhver útskýrt í stuttu máli fyrir mig hvað ég þarf að gera til að láta tölvuna stýra rafmagnshlut. Hef í hyggju að láta litla ferðatölvu sem ég á stjórna vélbúnaði með 6 hreyfingar. Stutt einföld lýsing væri nóg (eða linkur á heimasíðu). Kveðja.

Rökþraut vikunnar. (3 álit)

í Heimspeki fyrir 21 árum, 6 mánuðum
Jæja þá er komið að sögu númer 2. En svarið á númer eitt var að sjálfsögðu að þeir voru þríburar en ekki tvíburar. Saga 2. Garðyrkjumaður var að tína epli. Fimm þeirra fallegustu setti hann í körfu. Hvernig getur hann skipt eplunum fimm á milli fimm barna þannig að eitt epli verði í körfunni? Jæja… ef þið getið þetta sendið mér þá svar. Ekki posta það hér því það eru örugglega einhverjir á eftir ykkur sem vilja glíma við þetta. (þetta er ekki svo erfitt). Kveðja Gabbler.

Röksaga helgarinnar. (9 álit)

í Heimspeki fyrir 21 árum, 6 mánuðum
Mér áskotnaðist nokkrar sögur sem eru æfingar í röksemdarhugsun. Ég ætla að skella einni hér í hverri viku og sjá hvað þið eruð góðir í að hugsa. Þetta eru allt frekar stuttar sögur en flestar nokkuð góðar. Ef þið vitið svarið geymið þá að birta það fyrr en eithvað er liðið á vikuna. Saga 1. Jónas og Jakob eiga sama föður og sömu móður. Þeir fæddust á sama degi og á sama sjúkrahúsi. Þeir eru alveg eins í útliti. Það er satt að segja að ekki unnt að sjá nokkurn mun á þeim. Þeir eru þó ekki...

Sunnudagshugvekja. (3 álit)

í Smásögur fyrir 21 árum, 7 mánuðum
Ég gékk þungum skrefum niður í drungalegann miðbæinn með Adidas íþróttatösku í hendinni. Allt virtist vonlaust. Sýnin sem ég sá um morgunin var sem brend í huga minn…. Fallega eiginkonan mín í ástarleik með besta vini mínum…. Hvað hafði ég gert til að verðskulda þetta. Ég settist þunglamalega niður á lúinn bekkinn í Hljómskálagarðinum og velti fyrir mér að enda þetta vonlausa líf. Útundan mér tek ég eftir að ung stúlka sest á bekkinn á móti… Augun okkar mætast og hún brosir fallega svo skín...

IRC (1 álit)

í Heimspeki fyrir 21 árum, 7 mánuðum
Aaarggg… búinn að reyna að komast á ircið í klukkutíma!!!! Eithvað bilað hjá mér eða þeim. VeryMuch… ef þú ert á irc og það er eithvað spjall í gangi… ertu þá til í að logga það…. gætiru svo sent mér loggið. :) Kveðja Gabbler.

Varðandi könnun um glasið. (6 álit)

í Heimspeki fyrir 21 árum, 7 mánuðum
Fer ekki eftir því hvort það er að lækka í því eða hækka? Ég mundi álikta að tankur sem væri verið að fylla á væri hálffullur þegar hann er kominn uppá 1/2. En afturámóti tankur sem er verið að taka af er hálftómur þegar hann er kominn á 1/2. Þannig að það mætti bæta við könnunina “Er glasið sem þú ert að drekka úr hálf fullt eða hálf tómt.” Eða “Er glasið sem þú ert að hella í hálf fullt eða hálf tómt?” Hvað finnst ykkur? Kveðja Gabbler.

50% aukning..... (4 álit)

í Heimspeki fyrir 21 árum, 7 mánuðum
jæja góðir lesendur… nú var hvorki meira né minna en 50% aukning á aðsókn í IRC kvöld… Síðast vorum við VeryMuch einir en nú bættist Popcorn í hópinn. Einnig litu Ramax og gthth við smá stund. Umræðuefnið var á ýmsum nótum eins og síðast. En aðal heimspeki umræðan var um tímann og var reynt að svara spurningunni “Er tíminn skynvilla?” Ég vil þakka mönnum fyrir spjallið og hlakka til næsta sunnudags. Kveðja Gabbler.

FH burstaði Gróttu/KR (0 álit)

í Handbolti fyrir 21 árum, 7 mánuðum
FH stelpurnar lögðu Gróttu/KR með 30 mörkum gegn 13…. Þessi úrslit komu mér verulega á óvart því ég bjóst við að Grótta/KR væri með betra lið… Kannski eru FH stelpurnar bara svona góðar :) Áfram FH Hey… góður sigur hjá strákunum líka… (FH 28 - 27 HK)

Spendýrafæðing. (6 álit)

í Heimspeki fyrir 21 árum, 7 mánuðum
Síðustu 3 dagar hafa sennilega verið þeir erfiðustu, furðulegustu og skemmtilegustu í mínu lífi (hingað til allavega). Ég varð nefnilega svo heppinn að verða vitni að því þegar ég og konan mín eignuðumst 50cm langann 3.6 kílóa strák. Ef þetta fær mann ekki til að hugsa um lífið og heimspeki þá veit ég ekki hvað þarf til. En mikið rosalega er þetta erfitt. Hef aldrei orðið eins þreyttur án þess þó að gera neitt. Konur eiga skilið mikið hrós fyrir að standa í þessu. Forsetinn ætti að sæma...

37% (3 álit)

í Dulspeki fyrir 21 árum, 7 mánuðum
Þetta er alveg hreint með ólíkindum…. Annað hvort eru 37% þeirra sem heimsækja huga/dulspeki fávitar eða miklir húmoristar. 37% af þeim sem koma hingað segjast trúa á ALLT yfirnáttúrulegt. Þá geri ég ráð fyrir því að þeir trúi á tröll, jólasveina, tannálfinn, dreka, drauga, álfa, blómálfa, búálfa, pétur pan, bónusgrísinn…….ofl ofl. Þegar ég hugsa um það þá sé ég að 37% af þeim sem koma hingað eru húmoristar… já það hlýtur að vera. úff….. Kveðja Gabbler.

Handball Man með íslenskri deild. (1 álit)

í Handbolti fyrir 21 árum, 7 mánuðum
Jæja… buið að skella íslensku deildinni inní Handball Manager leikinn…. Þið getið downloadað honum hér. http://snow.prohosting.com/skarp/ Búinn að prófa og þetta virðist virka helvíti vel :)

Auto Forward á e-mail (0 álit)

í Windows fyrir 21 árum, 8 mánuðum
Er einhver hér sem getur sagt mér hvernig ég á að fara að því að búa til netfang sem hefur autoforward á grúbbu? Var að spá í að útbúa eitt netfang fyrir allann bekkinn sem ég er í. Þægilegra að senda öllum í einu svoleiðis póst. Var að reyna að finna þetta hjá hotmail og opera-mail en fann ekkert… kannski er þetta ekki hægt… Kveðja gabbler.

Microsoft snilld. (5 álit)

í Windows fyrir 21 árum, 8 mánuðum
Your Current Web Browsing Software Will Limit Your Ability to Use Hotmail As you know, Hotmail is web-based e-mail. If you are seeing this page, we have detected that you are using a web browser that Hotmail does not support. Hotmail supports the following web browsers: Microsoft Internet Explorer - version 4.0 or higher. We recommend that you upgrade your web browsing software, and invite you to download Microsoft's Internet Explorer 5.0.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok