Já, fólk trúir því sem er kennt. Er það þá gallað? Endilega, segðu mér meira um hvernig þú ert æðri manneskja en 80% af heimsbyggðinni. Fólk má rökræða um trú og trúleysi eins og það vill en um leið og fólk eins og þú kemur inn í umræðuna og byrjar að tala um hvað það sé ótrúlega heimskulegt að trúa og að trúað fólk sé “gallað” verð ég pirraður. Þetta er ótrúlega mikil heimska og sjálfselska. Reyndar gildir það sama um hvað trúað fólk segir um trúleysingja, ég tek bara meira eftir hinu.