Jæja þetta er sjálfsmynd af mér, þannig að ef þið sjáið einhvern vitleysing labbandi um í þessum fötum eru mjög sterkar líkur á því að það sé ég. Nema ég eigi tvíbura í fatasmekk.
Yay mynd sem ég var að teikna að Sunnu, sem mun vera fyrsta myndin af nokkrum þar sem ég ætla að teikna slatta af Ísfólkinu á næstunni :) En þetta er auðvitað bara eins og ég ímynda mér hana. Fötin eru ekki byggð á tímabilinu hennar, ég setti hana bara í eitthvað sem mér datt í hug. (og já ég var orðin voða löt að skyggja þegar ég kom að pilsinu).
Smá einokun á myndakubbnum hérna… Anyhow, eina almennilega myndin sem ég hef gert síðasliðnar 2 vikur. Einn af mínum fjölmörgu karakterum. Gagngrýni vel þegin =3
Bíð spennt eftir þessari, næsta bók í seríu Garth Nix, The Keys to the Kingdom. Fyrri bækur eru Mister Monday, Grim Tuesday, Drowned Wednesday, Sir Thursday og Lady Friday.
Síðasta kvöldmáltíðin eftir Leoanardo da Vinci, eins og allflestir vita. Þetta er samanburður á myndinni fyrir (efri) og eftir (neðri) hreinsun. Þrátt fyrir að myndin verði skírari við hreinsun finnst mér sorglegt að sjá sum smáatriði og liti hverfa með henni.
Enginn bakgrunnur í þetta skiptið. Geri ekki mikið af bakgrunnum þegar ég er grumpy með hausverk… Prófaði að gera þetta með akríl, verð að segja að það er frekar tricky að nota akríl miðað við olíuna.
Þetta mun vera nokkrar myndir af karakternum mínum Amezu í gegnum árin. Fyrsta myndin er frá 2002 og seinasta 2007. Er ekki alveg viss hve greinilega dagsetningarnar muni sjást. Veit ekki með ykkur en ég hef mjög gaman að þessu :)
Jæja þetta er nú eins og glöggt má sjá djöfull eða ári eins og ég kallaði hana sem er að kveikja í öllu. Fjör. Ég er ágætlega ánægð með þetta, eldurinn er ekkert alltof uber en mér finnst glóðin alveg ágæt. Ég geri sjaldan bakgrunna… Daman er annars ágæt, vinstri fóturinn á ekki alveg rétt á sér en þúst mjá.
Skissa af nemanda (supposedly ég) sem mætir í lokaprófið sitt og kemst að því að hún veit ekki neitt að því sem er á prófinu, en veit upp á sig sökina þar sem hún eyddi meirihlutanum af deginum í því að horfa á House, teikna, spila tölvuleiki og já já læra smá.
Þetta er blaðsíða úr litlu skissubókinni minni sem ég er alltaf með í skólanum. Ég og vinkona mín vorum að flippa með hugmyndir og þetta teiknaði ég: LeMan að hlaupa undan hinum illu mönnum sem eru með safapressu og hníf.
Well þetta er eitt að því sem mér datt í hug þegar ég hugsaði um WWII. Ég ætlaði mér að gera bakgrunnin sjálf en svo var bara kominn 9.nóv og ég á leið í útilegu. Þannig ég tók ljósmynd af netinu og fiffaði aðeins og setti dömurnar inná. Ég vona að þetta sé leyfilegt þar sem myndin var svo tómleg án bakgrunns :P
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..