Nornakonungurinn frá Angmar í orustu. Þetta líkist Sauroni eins og hann er í myndunum en þetta er ekki hann. Myndin er eftir hinn eina sanna John Howe.
Ófreskjan í vatninu fyrir utan Moría. Myndin sem mér finnst frábær er eftir John Howe. Því miður gat ég ekki sent hana stærri inn, því að myndakerfið er með stæla.
Ëarendill í Tirionsborg sem Noldar byggðu í Valinor. Tolkien skýrði borgina upphaflega Kôr, eins og kemur fram í The book of lost tales, vol.1. Myndin er eftir Ted Nasmith.
Þar sem enginn er að senda inn myndir ákvað ég að senda inn mynd af Legolasi eftir Herzwig Holzmann sem ég litaði í Photoshop. www.tolkien-kreativ.de/ tolkien/z_herwig.html
Dvergur eftir Herwig Holzmann sem ég litaði. Fleiri myndir má sjá hér http://www.tolkien-kreativ.de/tolkien/z_herwig.html Ég lofa að þetta verði síðasta myndin sem ég sendi inn sem ég hef litað.(Í bili.)
Beleg Strongbow(Beli Stórbogi). Besti vinur Túrins, En féll þó að lokum fyrir honum þegar hann var ný búinn að bjarga honum, en Túrinn hélt að hann væri orki. Þessa litaði ég líka í Photoshop.
Mynd af Fingono Hákonungi álfa, hann var bróðir Turgons og sonur Fingolfins. Hans helsta afrek var að bjarga Mæðrosi frá Morgothi. Ég litaði þessa mynd í photoshop svona var hún áður http://www.hugi.is/tolkien/images.php?page=view&contentId=2069179
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..