Hafið þið ekki séð þessar auglýsingar þar sem sagt er að þú getur farið á netið hvar sem er með svona netpungum , það er ekkert nema bull og vitleysa, ég var í tjaldferð með fjölskyldunni og ég og bróðir minn ætluðum á netið en nei, það var ekkert samband þarna. Svo þegar við fórum á kirkjubæjarklaustur virkaði það ekki heldur, en um leið og við komum í reykjavík virkaði það. Þetta er bara eins það sé verið að svindla á manni.