Shit maður, ég og vinur minn vorumn að leggja upp eina feita bombu, núna rétt áðan. Það gekk allt vel og ég var svona hálfnaður þegar bíll keyrði framhjá, við beygðum okkur og földum okkur bakvið gám, svo keyrði bíllinn í burtu.

Svo byrjuðum við aftur, þá kom bíllinn aftur framhjá okkur, úr hinni áttinni. En hann keyrði fram hjá okkur vsvo við vorum bara ‘aight’.

Svo keyrði fokkin bíllinn aftur framhjá, í þriðja sinn. Þá hlupum við í burtu og kallinn fór útúr bílnum og fylgdist með okkur.

Svo þegar hann sá hvert við vorum að fara þá keyrði hann á eftir okkur, elti okkur eins og mafakka.

Við hlupum yfir einhverja götu og inní garð og földum okkur í garðinum í svona 5 mín.

Þá kom sá sem átti húsið og spurði “bíddu er ekki allt í lagi hjá ykkur?” og við bara ‘jújú’ og hlupum í burtu.

Þá sá bíllinn okkur aftur og flautaði á okkur á milljón og skransaði þegar við beygðum, fokkin tíkin.

En við beygðum inná einvern rólóvöll og þar sá gaurinn okkur aftur (lonely dude..) en við komumst inní húsið hjá vini mínum og földum okkur þar.

Erum búnir að vera í svona hálftíma hérna, drulluþreyttir eftir hlaupið og hjartað á milljón.

Gaurinn ætlaði svo feeeeitt að bösta okkur.

Ef það er hægt að sekta mann fyrir að viðurkenna glæp á netinu, þá var þetta bara grín.

-habibi og almighty