Smá hugmynd!

Ég hvet Huga.is að gera fólki kleift að senda inn frumsamdar myndasögur svo við stöndum jafnt smásöguhorninu í þeim málum.
Ég geri ráð fyrir að innsendingar verði ekki alveg jafn örar og hjá smásögunum en það luma eflaust einhverjir á myndasögu eða þá finna sig knúna til að setja eina á blað ef þessi möguleiki væri fyrir hendi.
Sjálfur á ég nokkrar, einnar blaðsíðu, myndasögur sem myndu passa vel í slíkt horn.

Kveðja,
Ingi
www.facebook.com/teikningi