Ókei, lagið er með Jethro Tull og það er ótrúlega langt síðan ég heyrði það. Það byrjar með svona dálítið spænskt? Ekki beint þannig samt … svona einhvernveginn ekki týpískt rokklag samt. Flottur trommutaktur í byrjun en söngurinn byrjar ekki strax. Man ekkert neitt úr því en ef einhver lumar á laginu útfrá þessum ítarlegu upplýsingum þá væri frábært ef sá hinn sami gæti deilt vitneskju sinni með mér. Ég mundi leita af því sjálf en ég þarf að vita það fyrir kvöldið og hef ekki tíma til að leita að því sjálf.