Tja, ég vissi nú ekki alveg hvar ég átti að setja þetta en ég vildi bara aðeins tjá mig um tónleika. Sko ég hef alveg áhuga á tónlist samt mest bara svona í mildu tónunum ef þið skiljið, svona agent frescho og félagar. Ég hef alveg farið á nokkra tónleika, en ég bara fatta ekki hvað er gaman að hlusta á tónleika, það skemmir eiginlega bara tónana, ég vil heldur hlust á það fullkomið heima hjá mér í staðin fyrir að borga fyrir að hlusta á lélegar útgáfur á lögunum. Ef þið skiljið..