Jæja, ég held að ég sé ekki sá eini sem tók eftir því að taflan.org liggi niðri og vorum ég og vinir mínir í síðustu viku að setja upp tónlistar-, leikja- og kvikmyndasíðu ásamt spjallborði. Fyrir þá sem vilja líta á hana er síðan www.mania.stuff.is og spjallborðið á www.mania.stuff.is/korkur .
Þessi síða er ekki jafn einhæf og taflan.org, því hér er boðið uppá umræður af allri tegund tónlistar.

Ég vona að þetta fái góðar undirtektir því án fólks mun umræðan ekki haldast lifandi.