Mæli með nýju íslensku bandi sem ég var að heyra í. Engar súper upptökur en efnið lofar mjög góðu. Myndi segja að einhverjir aðdáendur “rólegs” metals ala Opeth og slíkt ættu að finna eitthvað við sitt hæfi.

Bandið heitir Orsök og er m.a. með Stebba og Tobba úr Gone Postal. Allt öðruvísi efni þó.

Lagið Intro er instrumental en söngur í laginu II. End Time Ruler lagið er svo instrumental líka og tekið upp live heyrist mér.

Tékkið á þessu
Resting Mind concerts