Kæru hausar!

Metalfyrirbærið Darknote óskar eftir gítarleikara til að leysa Freyr af hólmi, sem ákvað (því miður) að hverfa frá tónlist um óákveðinn tíma.

Viðkomandi þarf í fyrsta lagi að vera tilbúinn að leggja metnað í okkar tónlist og ekki að síður vera fullfær um að spila hana.

Við ætlum ekkert að setja einhver aldurstakmörk eins og eru oft í svona auglýsingum, heldur skipta hæfileikar fyrst og fremst máli og svo má skoða hitt. Rétt er þó að taka fram að núverandi meðlimir eru 28-30 ára.

Ef þú telur þig vera rétta manninn í þetta skaltu endilega
senda email á thedarknote@gmail.com eða svara hér að neðan.
Fokkit…ég fer all in!!