Ég býst ekki við að margir hérna hafi heyrt um þetta band - ég var sjálfur að kynnast þeim bara um daginn, og ákvað að láta á það reyna að kynna ykkur Hugara fyrir þeim. DSO má helst lýsa sem einhvers konar stórfurðulegum en hljómfögrum bræðingi af Mars Volta, Nightwish og… Salsa? Það sem er samt ennþá furðulegra er að… þessi blanda virkar! Þau er þvílíkt þétt, brjálað frumleg og mjög hress sveit. Mæli með að áhugasamir um blöndun tónlistarstefna og almennan avant-gardisma tékki á mæspeisinu þeirra og hlusti á eins og nokkur lög - þeir sem eru fastir með hausinn í einhverri black- eða deathmetalholu geta svosem sleppt því samt því að þeir munu ekki fíla þetta - þið hin? Njótið vel.
Peace through love, understanding and superior firepower.