Jæja, eins og flestir ættu að vita er nýtt ár í nánd og eflaust hellingurinn allur af plötum sem menn vænta árið 2008.

Þar sem ég veit um frekar fáar staðfestar plötur finnst mér tilvalið að gera þráð um komandi tónlist og langar að spyrja, hver er ykkar svona mesta tilhlökkun fyrir árið 2008?

Mín er að sjálfsögðu nýr Origin diskur.
Einnig verður spennandi að heyra nýja Meshuggah, Hate Eternal, Cryptopsy, Decrepit Birth svo eitthvað sé nefnt. Einhverstaðar heyrði ég að nýr Necrophagist væri í bígerð, en ég sel það ekki dýrara en ég keypti það, hef litla sem enga hugmynd.

Tjáið ykkur!