Það hefur væntanlega ekki farið framhjá neinum að það ríkir mikið Metallica æði hérna. Mig langar bara
að forvitnast hvort ég sé einn um þá skoðun að Metallica lifi á gamalli frægð. Ég er sjálfur einn mesti aðdáandi
Metallica sem uppi hefur verið en ég get ekki neitað því að síðustu ár hafa verið frekar döpur hjá Metallica.
Þeir eru óumdeilanlega ein besta hljómsveit sem uppi hefur verið og þess vegna er afar lélegt að menn
með þessa hæfileika og svona feril skuli ekki geta gert betri diska en þá sem komið hafa frá þeim síðustu ár.